Norðurland vestra
Norðurland vestra nær yfir 12.737 km² eða allt frá Stikuhálsi á milli Bitrufjarðar og Hrútafjarðar, austur um Húnavatnssýslur og Skagafjörð að Tröllaskaga en landsvæðið telur í heild sinni 7.430 íbúa. Sjö sveitarfélög tilheyra landshlutanum en það eru Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blöndósbær, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd, Sveitafélagið Skagafjörður og Akrahreppur. Fjölmennast er Sveitarfélagið Skagafjörður með rúmlega 4.000 íbúa en fámennast Skagabyggð með rétt rúmlega 90 íbúa.
Landshlutinn er einn af helstu landbúnaðarhéruðum landsins en í Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2020-2024 kemur fram að nokkurrar fábreytni gæti innan atvinnulífsins auk þess að landshlutinn glími við fámenni og lágt menntunarstig. Stefna Norðurlands vestra er að „efla atvinnuþróun og nýsköpun sem styður við vöxt lykilatvinnugreina og laðar til sín menntað og hæft fólk á öllum sviðum atvinnulífsins.“
Megináherslur Sóknaráætlunar 2020-2024 í atvinnuþróun og nýsköpun fela í sér að:
- Auka fullvinnslu afurða
- Fjölga vaxtarbroddum og styrkja grunnstoðir í atvinnulífinu, s.s. í ferðaþjónustu, nýsköpun, vöruþróun, landbúnaði og sjávarútvegi
- Draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum atvinnustarfsemi á svæðinu.
Lausnamót
Lausnamótið Hacking Norðurland var fyrst haldið árið 2021 undir yfirskriftinni Matur, vatn, orka: Leiðin að sjálfbærni. Mótið er hluti af lausnamótaröð Hacking Hekla sem hóf göngu sína árið 2020. Hacking Norðurland var haldið á vegum Eims, Nordic Food in Tourism, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi Eystra (SSNE), Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Nýsköpunar í norðri í samstarfi við Hacking Hekla og Hugmyndaþorp Austan mána.
Hraðlar
Norðanátt / Hringrás nýsköpunnar
Vaxtarrými er viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki og nýsköpun innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi.
Hæfnihringir er samstarfsverkefni landshlutasamtaka að bjóða konum í atvinnurekstri stuðning og fræðslu.
Nýsköpunarviðburðir
Nýsköpunarferðalag um Norðurland
Samvinnu- og/eða nýsköpunarrými
Verið - Vísindagarðar og nýsköpunarsetur
Útibúið - Skrifstofusetur Samvinnurými staðsett í gömlu bankaútibúi Landsbankans á Hvammstanga.
NES - Listamiðstöð Miðstöð með vinnustofum listamanna, sýningahaldi, og kynningu á menningu og listum í samstarfi við innlenda og erlenda listamenn. Starfrækt í fyrrum fiskvinnsluhúsi á Skagaströnd.
Annað stuðningsumhverfi
Háskólinn á Hólum Háskólinn á Hólum Háskólinn á Hólum vill efla nýsköpun og tengsl við atvinnulífið. Í stefnu Háskólans á Hólum 2021-2025 kemur m.a. fram að „Háskólinn þróar kennsluhætti og hvetur til nýsköpunar, og styrkir tengsl náms, kennslu, atvinnulífs og samfélags. Háskólinn er leiðandi afl í mótun sérfræðinga á fagsviðum ferðamála, viðburðastjórnunar, fiskeldis, fiskalíffræði, vatnalíffræði, reiðmennsku- og reiðkennslu. [...] Þá telur Háskólinn á Hólum það vera hlutverk sitt að vinna að rannsóknar- og nýsköpunarverkefnum í samstarfi við atvinnugreinar sem snerta fræðasvið hans.“
Farskólinn - Miðstöð símenntunnar á Norðurlandi vestra Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra Farskólanum er ætlað að efla endur- og símenntun á Norðurlandi vestra, greina þarfir fyrir fræðslu, standa fyrir hvers konar námi og koma á fót háskólanámi í heimabyggð. Skólinn býður uppá samvinnurými fyrir nemendur. Námsverin eru ætluð háskólanemum í fjarnámi auk annara fjarnema.
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurland vestra Rannsóknarsvið setursins á Skagaströnd er sagnfræði. Við setrið eru stundaðar sagnfræðirannsóknir af ýmsu tagi en frá ársbyrjun 2019 hefur rannsóknasetrið unnið að gerð gagnagrunns sáttanefndabóka í samstarfi við Þjóðskjalasafn Íslands og Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Setrið býður, í samvinnu við NES listamiðstöð á Skagaströnd, upp á aðstöðu fyrir gestafræðimenn sem geta dvalið þar við rannsóknir í allt að fjórar vikur í senn.
Nýsköpunarverkefni á Norðurlandi vestra
Nafn | Staðsetning | Lýsing | |
---|---|---|---|
Breiðargerði | Skagafjörður | Garðyrkjustöð með vottaða lífræna ræktun. | |
Pure Natura | Sauðárkrókur | Framleiðir hágæða bætiefni og matvæli úr íslensku hráefni; innmat og kirtlum úr íslenskum lömbum og villtum jurtum. | |
Austan Vatna | Skagafjörður | Framleiðir Chimicurri sósur og fullvinnur kjötafurðir. Notast er við staðbundin hráefni og lögð áhersla á mikilvægi samspils náttúru og dýra. | |
Brúnastaðir Ostavinnsla | Skagafjörður | Handgerðir geita- og sauðfjárostar. | |
Hvammshlíðarostur | Blönduós | Ostar framleiddir úr íslensku hráefni; kúamjólk (stundum geita- eða sauðamjólk), villijurtum, fléttum og þörungum og sjávarsalt. | |
Matarkistan Skagafjörður | Skagafjörður | Ýmsir aðilar í héraðinu vinna saman að því að efla skagfirska matarmenningu og koma henni á framfæri. Vefverslun beint frá býli. | |
Ísponica | Hólar | Lóðrétt vatnsræktun á salati og kryddum. | |
Hitaveita í Hrútafirði | Hrútafjörður | Mat á jarðhitasvæði og hugsanleg stækkun hitaveitu. Prufudæling borholu (RS-14) á Reykjatanga í Hrútafirði og mat á vinnslugetu jarðhitasvæðisins og hugsanlegri stækkun hitaveitunnar. | |
Textílmiðstöð | Blönduós | „Sól í sveit“ Uppbyggingar á textíltengdri ferðaþjónustu á Húnavöllum. Kynning á íslensku ullinni, námskeið og kennsla í textíl með nýtingu og vörusölu í huga. | |
Kakalaskáli | Kringlumýri í Blönduhlíð | Skálinn er hugsaður sem umhverfi fyrir sögumann sem segir frá atburðum á Sturlungaöld. Þar er boðið upp á sögustundir, sérsýningar og margt fleira. | |
Jökla | Skagafjörður | Framleiðsla á rjómalíkjör úr íslenskum hráefnum. |