Munur á milli breytinga „Norðurland eystra“
Lína 17: | Lína 17: | ||
[[Nýsköpun á norðurlandi|'''Nýsköpun á Norðurlandi''']] er sameiginleg aðild [[Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)|Samtaka Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)]] og [[Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra|Samtaka Sveitarfélaga og atvinnuþróunnar á Norðurlandi eystra (SSNE)]] í [[Nýsköpunarvikan|Nýsköpunarvikunni.]] | [[Nýsköpun á norðurlandi|'''Nýsköpun á Norðurlandi''']] er sameiginleg aðild [[Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)|Samtaka Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)]] og [[Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra|Samtaka Sveitarfélaga og atvinnuþróunnar á Norðurlandi eystra (SSNE)]] í [[Nýsköpunarvikan|Nýsköpunarvikunni.]] | ||
*[[Hugmyndaþorpið Norðurland|'''Hugmyndaþorpið Norðurland''']] hugmyndasamkeppni haldin á vegum sveitarfélaganna [[Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)]] og [[Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra|Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)]] í gegnum veflausnina [[Hugmyndaþorp]]. | *[[Hugmyndaþorpið Norðurland|'''Hugmyndaþorpið Norðurland''']] hugmyndasamkeppni haldin á vegum sveitarfélaganna [[Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)]] og [[Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra|Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)]] í gegnum veflausnina [[Hugmyndaþorp]]. | ||
* [[Nýsköpunarhádegi|'''Nýsköpunarhádegi''']] | * [[Nýsköpunarhádegi|'''Nýsköpunarhádegi''']] Viðtöl við athafnafólk á norðurlandi. Fjallað um nýsköpun í ferðaþjónustu, menntamálum, matvælaframleiðslu, hönnun og listum og menningarmálum. | ||
* [[Nýsköpunarferðalag um Norðurland|'''Nýsköpunarferðalag um Norðurland''']] | * [[Nýsköpunarferðalag um Norðurland|'''Nýsköpunarferðalag um Norðurland''']] | ||
Útgáfa síðunnar 14. febrúar 2022 kl. 12:56
Landshluti | |
---|---|
Íbúafjöldi | 30000 |
Flatarmál | 22735 km² |
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) hefur það að yfirlýstu markmiði í Sóknaráætlun 2020-2024 að „[e]fla fjölbreytt atvinnulíf og stuðla að nýsköpun á öllu svæðinu. Sérstök áhersla er lögð á matvælatækni, velferðartækni, frumgreinar, ferðaþjónustu, og norðurslóðamál.“
Lausnamót
Lausnamótið Hacking Norðurland var fyrst haldið 2021 undir yfirskriftinni Matur, vatn, orka: Leiðin að sjálfbærni. Mótið er hluti af lausnamótaröð Hacking Hekla sem hóf göngu sína árið 2020. Hacking Norðurland var haldið á vegum Eims, Nordic Food in Tourism, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi Eystra (SSNE), Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Nýsköpunar í norðri í samstarfi við Hacking Hekla og Hugmyndaþorp Austan mána.
Lausnamótið Ullarþon var haldið í fyrsta skiptið 2021 á vegum Textílmiðstöðvar Íslands. Markmið Ullarþons er að ýta undir nýsköpun, auka verðmæti hráefnis, nýsköpun í gerð bands og finna nýja notkunarmöguleika ullarinnar.
Hraðlar
Norðanátt er samstarfsverkefni stuðningsaðila í nýsköpunarumhverfinu á Norðurlandi og er ætlað að skapa umhverfi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á Norðurlandi með áherslu á nýsköpun á sviði sjálfbærni, orku, vatns og matar.
Vaxtarrými er viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki og nýsköpun innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi.
Hæfnihringir er samstarfsverkefni landshlutasamtaka að bjóða konum í atvinnurekstri stuðning og fræðslu.
Nýsköpunarviðburðir
Nýsköpun á Norðurlandi er sameiginleg aðild Samtaka Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Samtaka Sveitarfélaga og atvinnuþróunnar á Norðurlandi eystra (SSNE) í Nýsköpunarvikunni.
- Hugmyndaþorpið Norðurland hugmyndasamkeppni haldin á vegum sveitarfélaganna Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) í gegnum veflausnina Hugmyndaþorp.
- Nýsköpunarhádegi Viðtöl við athafnafólk á norðurlandi. Fjallað um nýsköpun í ferðaþjónustu, menntamálum, matvælaframleiðslu, hönnun og listum og menningarmálum.
- Nýsköpunarferðalag um Norðurland
Samvinnu- og/eða nýsköpunarrými
Friðlandsstofa er fræðslusetur og aðsetur starfsmanns Friðlandsins. Friðlandsstofa er staðsett í gamla skólanum í Dalvíkurbyggð. Dalvíkurbyggð og Umhverfisstofnun standa að stofnun Friðlandsstofu.
AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem stundar háskólanám og sinnir fræði- og ritstörfum. AkureyrarAkademían er til húsa í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð 12 á Akureyri og þar stendur einstaklingum til boða að leigja sér vinnuaðstöðu og taka þátt í þverfaglegu fræðasamfélagi.
Verksmiðjan á Hjalteyri er vinnuaðstaða og sýningarstaður fyrir samtímalist, en einnig eru þar haldnir viðburðir og listasmiðjur.
Annað stuðningsumhverfi
Háskólinn á Akureyri Kemur að ýmsum rannsóknum sem tengjast nýsköpun m.a. í gegnum doktorsnema við skólann og Erasmus+ verkefni.
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Húsavík Megináhersla setursins á Húsavík eru rannsóknir tengdar hvölum en einnig svifi, sjófuglum og loftslagsrannsóknum og öðru sem tengist rannsóknum á hafinu og lífríki þess.
Nýsköpunarverkefni á Norðurlandi eystra
Kaffi kú Kaffi kú | Akureyri | Veitingastaður í hátæknifjósi og sælkeraverslun beint frá býli. |
Gilhagi Gilhagi | Öxarfjörður | Ullarvinnsla á ull úr héraði. |
Mýsilica Mýsilica | Bjarnarflag | Hágæða húðvörur unnar úr náttúrulegum kísil og steinefnaríku jarðhitavatni sem fellur til við vinnslu á jarðvarma. Samstarf við HA. |
Mórúnir Mórúnir | Keldur | Handlituð upp og opin jurtalitunarstofa í Lóni í Kelduhverfi þar sem hægt er að versla garn og kynnast framleiðsluferlinu. |
Friðlandsstofa | Dalvík | Fræðslusetur, samvinnurými og aðsetur starfsmanns Friðlandsins. |
SamfélagsgróðurhúsSamfélagsgróðurhús | Öxarfjörður | Eitt þriggja tilraunaverkefna í alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem nefnist Crowdthermal unnið af Eimi og GEORG. |
Mýsköpun Mýsköpun | Bjarnarflag | Tilraunaræktun á smáþörungnum til að þróa og framleiða spirulina duft sem fæðubótaefni. |
SinfoniaNord SinfoniaNord | Akureyri | Uppbygging, rekstur og markaðssetning tónlistarupptökustarfsemi í Hofi með áherslu á sinfóníska kvikmyndatónlist. |
NorðurstrandaleiðNorðurstrandaleið | Býður ferðamönnum að kanna norðurströnd Íslands en leiðin fer um alla strandlengjuna, frá Hvammstanga í vestri til Bakkafjarðar í austri. | |
Ektafiskur | Hauganes | Framleiðir næringarríkan saltstein fyrir búfé úr afsalti sem fellur til við söltun á fiski. |
Plastgarðar | Akureyri | Þróa heyrúllupoka úr endurunnu plasti sem hægt er að nota ár eftir ár og skapa þannig hringrásarhagkerfi landbúnaðarplasts. |
Íslandsþari | Húsavík | Nýtir jarðhita til að vinna verðmætar afurðir úr stórþara sem vex í miklu magni við Norðurland. |
Nægtarbrunnur Náttúrunnar | Bárðardalur | Þróun nýrra drykkjarvara úr staðbundnu hráefni s.s. grasöli og rabarbarafreyðivíni. |
Icelandic Eider | Akureyri | Sérhæfir sig í fullvinnslu æðardúns og þróun á útivistarvörum. Um er að ræða sjálfbærar vörur þar sem dúnninn fellur til af villtum fuglum og til hreinsunar er notast við jarðvarma af svæðinu. |
Velferðartæknimiðstöðin | Velferðartæknimiðstöð á Norðurlandi eystra Veltek. | |
Fóðurverksmiðjan Laxá | Þróun á lífplasti úr Cyanobakteríum | |
Green Fuel ehf. | Kolefnisfrítt eldsneyti úr vistvænni orku | |
Capretto ehf. | Hagnýting hugverka til eflingar atvinnulífs á landsbyggðinni | |
Norðursigling hf. | Vistvænni skrúfur - lækkað kolefnisspor | |
Markaðsstofa Norðurlands | Taste North Iceland |