Þekkingarsetur

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 31. janúar 2022 kl. 11:52 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2022 kl. 11:52 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Stökkva á:flakk, leita

Suðurland

Þekkingarsetur Vestmannaeyja Starfsemi stofnanna og fyrirtækja innan Þekkingarseturs Vestmannaeyja er fjölþætt og kemur víða við sögu, t.a.m. í atvinnulífi, ferðamálum, menningarstarfsemi og menntun.

Nýheimar - Þekkingarsetur á Hornafirði er samstarfshattur ólíkra stofnana sem starfa á sviði menntunar, menningar, nýsköpunar og rannsókna á Suðausturlandi.

Kirkjubæjarstofa Þekkingarsetur er rannsóknar- og fræðasetur á sviði náttúrufars, sögu og menningar. Markmið starfseminnar er að efla og styðja rannsóknir og fræðslu um náttúrufar, sögu og menningu héraðsins.

Kötlusetur á Vík er miðstöð fræðslu, menningar og ferðamála og þjónar margþættu hlutverki m.a. sem Gestastofa Kötlu jarðvangs, Menningarmiðstöð Mýrdælinga, Upplýsingamiðstöð, Safn- og sýningarrými.

Ölfus Cluster Þekkingarsetur er þekkingarklasi fyrirtækja og opinberra aðila sem koma að nýsköpun, vöruþróun og rannsóknum. Ölfus Cluster vinnur að uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu en með sérstakri áherslu á sjálfbæra matvælaframleiðslu.

Háskólafélag Suðurlands er staðsett í Fjölheimum á Selfossi. Tilgangur félagsins er að auka búsetugæði og styrkja efnahag á Suðurlandi með uppbyggingu þekkingarsamfélags.

Suðurnes

Þekkingarsetur Suðurnesja Markmið Þekkingarsetursins snúa meðal annars að: rannsóknum og þróun, háskólanámi og samþættingu þekkingarstarfs og símenntunar og samstarfi við aðrar menntastofnanir á Suðurnesjum.


Norðurland

Þekkingarnet Þingeyinga er símenntunar-, háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfar á grunni tveggja stofnana, símenntunarmiðstöðina Fræðslumiðstöð Þingeyinga og háskólanáms- og rannsóknasetursins Þekkingarseturs Þingeyinga.

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem stundar háskólanám og sinnir fræði- og ritstörfum.

Þekkingarsetrið á Blönduósi

Þekkingarsetrið á Blönduósi Textílmiðstöðin varð til vegna samþættingar Textílseturs Íslands (stofnað 2005) og Þekkingarsetursins á Blönduósi (stofnað 2012). Samþættingin felst í því að fulltrúaráð og stjórnir beggja stofnana eru sameinaðar og var ný stjórn kosin samkvæmt nýjum skipulagsskrám 8. janúar 2019.

Textílmiðstöðin hefur það meginmarkmið vera alþjóðleg miðstöð öflugrar rannsóknar- og þróunarstarfssemi í textílframleiðslu, textíllistum og handverki í textíl. Jafnframt sinnir Textílmiðstöðin því hlutverki að bjóða upp á aðstöðu fyrir háskólanám og fullorðinsfræðslu með aðgengi að fjarfundabúnaði og próftöku í samstarfi við aðila háskóla og símenntunarstöðva.

Í starfsemi Textílmiðstöðvarinnar er lögð áhersla á nýsköpunar-, þróunar- og samstarfsverkefni sem stuðla að atvinnuuppbygginu í tengslum við textíl, menningu og sögu svæðisins með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni. Í Kvennaskólanum er einnig rekin alþjóðleg Textíllistamiðstöð, Ós, í samstarfi við Textílmiðstöðina.

Starfsemi Textílmiðstöðvar byggir á samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Þann 22. apríl 2020 voru formlega stofnuð Samtök þekkingarsetra (SÞS) sem Textílmiðstöð Íslands er aðili að. Um er að ræða netverk þekkingarsetra á landsbyggðinni sem starfa samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Meðal samningsbundinna verkefna setranna eru rannsóknir og þróun til eflingar byggðar, þjónusta við háskólanema, hagnýting og miðlun þekkingar sem og efling nýsköpunar, atvinnu og samfélagsþróunar.


Vestfirðir

Háskólasetur Vestfjarða er fjarnámssetur sem þjónar um 100 fjarnemum, það starfrækir meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun og sjávarbyggðafræði fyrir um 60-80 meistaranema auk einstaklingsmiðaðrar námsleið á meistarastigi í sjávartengdri nýsköpun.


Austurland

Þekkingarsetur Vopnafirði Austurbrú hefur með höndum umsýslu verkefnis er varðar fræða- og þekkingarsetur í Kaupvangi á Vopnafirði. Markmið verkefnisins er að vinna að eflingu mennta-, menningar-, fræða- og atvinnulífs á Vopnafirði með þeirri sérfræðiþekkingu sem til er innan Austurbrúar. Starfsstöð Austurbrúar á Vopnafirði er í menningarhúsinu Kaupvangi. Þar er einn verkefnastjóri í fullu starfi sem hefur umsjón með Kaupvangsverkefnunum. Grundvöllur starfsins í Kaupvangi er þjónusta við fjarnema á háskólastigi en í Kaupvangi er þeim boðið upp á námsaðstöðu og aðstoð við próftöku. Af öðrum verkefnum ber helst að nefna vinnu við gerð áfangastaðaáætlunar fyrir Vopnafjörð sem hófst haustið 2020 og stefnt er að ljúki haustið 2021. Auk þess er verkefnastjóri Austurbrúar á Vopnafirði tengiliður við sveitarfélagið í ýmsum verkefnum á sviði mennta- menningar- og atvinnuþróunarmála.