Munur á milli breytinga „Norðurland eystra“

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Stökkva á:flakk, leita
Lína 3: Lína 3:


== [[Lausnamót]] ==
== [[Lausnamót]] ==
Lausnamótið [[Hacking Norðurland|'''Hacking Norðurland''']] var fyrst haldið 2021 undir yfirskriftinni ''Matur, vatn, orka: Leiðin að sjálfbærni.'' Mótið er hluti af lausnamótaröð [[Hacking Hekla]] sem hóf göngu sína árið 2020. Hacking Norðurland var haldið á vegum [[Eimur|Eims]], [[Nordic Food in Tourism]], [[Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra|Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi Eystra SSNE]], [[Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)|Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra SSNV]] og [[Nýsköpun í norðri|Nýsköpunar í norðri]] í samstarfi við [[Hacking Hekla]] og [[Hugmyndaþorp]] [[Austan mána]].
Lausnamótið [[Hacking Norðurland|'''Hacking Norðurland''']] var fyrst haldið 2021 undir yfirskriftinni ''Matur, vatn, orka: Leiðin að sjálfbærni.'' Mótið er hluti af lausnamótaröð [[Hacking Hekla]] sem hóf göngu sína árið 2020. Hacking Norðurland var haldið á vegum [[Eimur|Eims]], [[Nordic Food in Tourism]], [[Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra|Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi Eystra (SSNE)]], [[Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)|Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)]] og [[Nýsköpun í norðri|Nýsköpunar í norðri]] í samstarfi við [[Hacking Hekla]] og [[Hugmyndaþorp]] [[Austan mána]].


Lausnamótið [[Ullarþon|'''Ullarþon''']] var haldið í fyrsta skiptið 2021 á vegum [[Textílmiðstöð Íslands|Textílmiðstöðvar Íslands]]. Markmið Ullarþons er að ýta undir nýsköpun, auka verðmæti hráefnis, nýsköpun í gerð bands og finna nýja notkunarmöguleika ullarinnar.  
Lausnamótið [[Ullarþon|'''Ullarþon''']] var haldið í fyrsta skiptið 2021 á vegum [[Textílmiðstöð Íslands|Textílmiðstöðvar Íslands]]. Markmið Ullarþons er að ýta undir nýsköpun, auka verðmæti hráefnis, nýsköpun í gerð bands og finna nýja notkunarmöguleika ullarinnar.  

Útgáfa síðunnar 20. janúar 2022 kl. 13:10

Landshluti
thumb
Íbúafjöldi30000
Flatarmál22735 km²

Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) hefur það að yfirlýstu markmiði í Sóknaráætlun sinni fyrir 2020-2024 að „Efla fjölbreytt atvinnulíf og stuðla að nýsköpun á öllu svæðinu. Sérstök áhersla er lögð á matvælatækni, velferðartækni, frumgreinar, ferðaþjónustu, og norðurslóðamál“.

Lausnamót

Lausnamótið Hacking Norðurland var fyrst haldið 2021 undir yfirskriftinni Matur, vatn, orka: Leiðin að sjálfbærni. Mótið er hluti af lausnamótaröð Hacking Hekla sem hóf göngu sína árið 2020. Hacking Norðurland var haldið á vegum Eims, Nordic Food in Tourism, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi Eystra (SSNE), Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Nýsköpunar í norðri í samstarfi við Hacking Hekla og Hugmyndaþorp Austan mána.

Lausnamótið Ullarþon var haldið í fyrsta skiptið 2021 á vegum Textílmiðstöðvar Íslands. Markmið Ullarþons er að ýta undir nýsköpun, auka verðmæti hráefnis, nýsköpun í gerð bands og finna nýja notkunarmöguleika ullarinnar.

Hraðlar

Norðanátt

Vaxtarrými er viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki og nýsköpun innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi

Hæfnihringir er samstarfsverkefni landshlutasamtaka að bjóða konum í atvinnurekstri stuðning og fræðslu.

Nýsköpunarviðburðir

Samvinnu- og/eða nýsköpunarrými

Friðlandsstofa er fræðslusetur og aðsetur starfsmanns Friðlandsins. Friðlandsstofa er staðsett í gamla skólanum í Dalvíkurbyggð. Dalvíkurbyggð og Umhverfisstofnun standa að stofnun Friðlandsstofu.

Annað stuðningsumhverfi

Háskólinn á Akureyri Kemur að ýmsum rannsóknum sem tengjast nýsköpun m.a. í gegnum doktorsnema við skólann og Erasmus+ verkefni.

Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Húsavík Megináhersla setursins á Húsavík eru rannsóknir tengdar hvölum en einnig svifi, sjófuglum og loftslagsrannsóknum og öðru sem tengist rannsóknum á hafinu og lífríki þess.

Nýsköpunarverkefni á Norðurlandi eystra

Kaffi kú Akureyri Veitingastaður í hátæknifjósi og sælkeraverslun beint frá býli.
Gilhagi Öxarfjörður Ullarvinnsla á ull úr héraði.
Mýsilica Bjarnarflag Hágæða húðvörur unnar úr náttúrulegum kísil og steinefnaríku jarðhitavatni sem fellur til við vinnslu á jarðvarma. Samstarf við HA.
Mórúnir Keldur Handlituð upp og opin jurtalitunarstofa í Lóni í Kelduhverfi þar sem hægt er að versla garn og kynnast framleiðsluferlinu.
Friðlandsstofa Dalvík Fræðslusetur, samvinnurými og aðsetur starfsmanns Friðlandsins.
Samfélagsgróðurhús Öxarfjörður Eitt þriggja tilraunaverkefna í alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem nefnist Crowdthermal unnið af Eimi og GEORG.
Mýsköpun Bjarnarflag Tilraunaræktun á smáþörungnum til að þróa og framleiða spirulina duft sem fæðubótaefni.
SinfoniaNord Akureyri Uppbygging, rekstur og markaðssetning tónlistarupptökustarfsemi í Hofi með áherslu á sinfóníska kvikmyndatónlist.
Norðurstrandaleið Býður ferðamönnum að kanna norðurströnd Íslands en leiðin fer um alla strandlengjuna, frá Hvammstanga í vestri til Bakkafjarðar í austri.
Verksmiðjan á Hjalteyri Hjalteyri Gestavinnustofa og sýningarstaður fyrir samtímalist.
Ektafiskur Hauganes Framleiðir næringarríkan saltstein fyrir búfé úr afsalti sem fellur til við söltun á fiski.
Plastgarðar Akureyri Þróa heyrúllupoka úr endurunnu plasti sem hægt er að nota ár eftir ár og skapa þannig hringrásarhagkerfi landbúnaðarplasts.
Íslandsþari Húsavík Nýtir jarðhita til að vinna verðmætar afurðir úr stórþara sem vex í miklu magni við Norðurland.
Nægtarbrunnur Náttúrunnar Bárðardalur Þróun nýrra drykkjarvara úr staðbundnu hráefni s.s. grasöli og rabarbarafreyðivíni.
Icelandic Eider Akureyri Sérhæfir sig í fullvinnslu æðardúns og þróun á útivistarvörum. Um er að ræða sjálfbærar vörur þar sem dúnninn fellur til af villtum fuglum og til hreinsunar er notast við jarðvarma af svæðinu.