Munur á milli breytinga „Norðurland eystra“
Lína 1: | Lína 1: | ||
{{Landshluti|population=30000|image=Nordurland eystra.png|area=22735}} | {{Landshluti|population=30000|image=Nordurland eystra.png|area=22735}} | ||
[[Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra|Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)]] hefur það að yfirlýstu markmiði í [https://www.ssne.is/static/files/Arsthing/2021/12.0-soknaraaetlun-2020-2024-endurskodun-2021.pdf Sóknaráætlun] sinni fyrir 2020-2024 að „Efla fjölbreytt atvinnulíf og stuðla að nýsköpun á öllu svæðinu. Sérstök áhersla er lögð á matvælatækni, velferðartækni, frumgreinar, ferðaþjónustu, og norðurslóðamál“. | [[Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra|Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE)]] hefur það að yfirlýstu markmiði í [https://www.ssne.is/static/files/Arsthing/2021/12.0-soknaraaetlun-2020-2024-endurskodun-2021.pdf Sóknaráætlun] sinni fyrir 2020-2024 að „Efla fjölbreytt atvinnulíf og stuðla að nýsköpun á öllu svæðinu. Sérstök áhersla er lögð á matvælatækni, velferðartækni, frumgreinar, ferðaþjónustu, og norðurslóðamál“. | ||
Útgáfa síðunnar 19. janúar 2022 kl. 14:19
Landshluti | |
---|---|
Íbúafjöldi | 30000 |
Flatarmál | 22735 km² |
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) hefur það að yfirlýstu markmiði í Sóknaráætlun sinni fyrir 2020-2024 að „Efla fjölbreytt atvinnulíf og stuðla að nýsköpun á öllu svæðinu. Sérstök áhersla er lögð á matvælatækni, velferðartækni, frumgreinar, ferðaþjónustu, og norðurslóðamál“.
Lausnamót
Lausnamótið Hacking Norðurland var fyrst haldið 2021 undir yfirskriftinni Matur, vatn, orka: Leiðin að sjálfbærni. Mótið er hluti af lausnamótaröð Hacking Hekla sem hóf göngu sína árið 2020. Hacking Norðurland var haldið á vegum Eims, Nordic Food in Tourism, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi Eystra SSNE, Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra SSNV og Nýsköpunar í norðri í samstarfi við Hacking Hekla og Hugmyndaþorp Austan mána.
Lausnamótið Ullarþon var haldið í fyrsta skiptið 2021 á vegum Textílmiðstöðvar Íslands. Markmið Ullarþons er að ýta undir nýsköpun, auka verðmæti hráefnis, nýsköpun í gerð bands og finna nýja notkunarmöguleika ullarinnar.
Hraðlar
Norðanátt / Hringrás nýsköpunnar
Vaxtarrými er viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla, ný fyrirtæki og nýsköpun innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi
Hæfnihringir er samstarfsverkefni landshlutasamtaka að bjóða konum í atvinnurekstri stuðning og fræðslu.
Nýsköpunarviðburðir
Samvinnu- og/eða nýsköpunarrými
Friðlandsstofa er fræðslusetur og aðsetur starfsmanns Friðlandsins. Friðlandsstofa er staðsett í gamla skólanum í Dalvíkurbyggð. Dalvíkurbyggð og Umhverfisstofnun standa að stofnun Friðlandsstofu.
Annað stuðningsumhverfi
Háskólinn á Akureyri Kemur að ýmsum rannsóknum sem tengjast nýsköpun m.a. í gegnum doktorsnema við skólann og Erasmus+ verkefni.
Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Húsavík Megináhersla setursins á Húsavík eru rannsóknir tengdar hvölum en einnig svifi, sjófuglum og loftslagsrannsóknum og öðru sem tengist rannsóknum á hafinu og lífríki þess.
Nýsköpunarverkefni á Norðurlandi eystra
Kaffi kú | Akureyri | Veitingastaður í hátæknifjósi og sælkeraverslun beint frá býli. |
Gilhagi | Öxarfjörður | Ullarvinnsla á ull úr héraði. |
Mýsilica | Bjarnarflag | Hágæða húðvörur unnar úr náttúrulegum kísil og steinefnaríku jarðhitavatni sem fellur til við vinnslu á jarðvarma. Samstarf við HA. |
Mórúnir | Keldur | Handlituð upp og opin jurtalitunarstofa í Lóni í Kelduhverfi þar sem hægt er að versla garn og kynnast framleiðsluferlinu. |
Friðlandsstofa | Dalvík | Fræðslusetur, samvinnurými og aðsetur starfsmanns Friðlandsins. |
Samfélagsgróðurhús | Öxarfjörður | Eitt þriggja tilraunaverkefna í alþjóðlegu rannsóknarverkefni sem nefnist Crowdthermal unnið af Eimi og GEORG. |
Mýsköpun | Bjarnarflag | Tilraunaræktun á smáþörungnum til að þróa og framleiða spirulina duft sem fæðubótaefni. |
SinfoniaNord | Akureyri | Uppbygging, rekstur og markaðssetning tónlistarupptökustarfsemi í Hofi með áherslu á sinfóníska kvikmyndatónlist. |
Norðurstrandaleið | Býður ferðamönnum að kanna norðurströnd Íslands en leiðin fer um alla strandlengjuna, frá Hvammstanga í vestri til Bakkafjarðar í austri. | |
Verksmiðjan á Hjalteyri | Hjalteyri | Gestavinnustofa og sýningarstaður fyrir samtímalist. |
Ektafiskur | Hauganes | Framleiðir næringarríkan saltstein fyrir búfé úr afsalti sem fellur til við söltun á fiski. |
Plastgarðar | Akureyri | Þróa heyrúllupoka úr endurunnu plasti sem hægt er að nota ár eftir ár og skapa þannig hringrásarhagkerfi landbúnaðarplasts. |
Íslandsþari | Húsavík | Nýtir jarðhita til að vinna verðmætar afurðir úr stórþara sem vex í miklu magni við Norðurland. |
Nægtarbrunnur Náttúrunnar | Bárðardalur | Þróun nýrra drykkjarvara úr staðbundnu hráefni s.s. grasöli og rabarbarafreyðivíni. |
Icelandic Eider | Akureyri | Sérhæfir sig í fullvinnslu æðardúns og þróun á útivistarvörum. Um er að ræða sjálfbærar vörur þar sem dúnninn fellur til af villtum fuglum og til hreinsunar er notast við jarðvarma af svæðinu. |