Textílmiðstöð Íslands
Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 1. febrúar 2022 kl. 10:43 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Útgáfa frá 1. febrúar 2022 kl. 10:43 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Vefsíða | |
---|---|
Tegund | Miðstöð |
Netfang | textilmidstod@textilmidstod.is |
Heimilisfang | Árbraut 31, 540 |
Staður | Blönduós |
Landshluti | Norðurland vestra |
Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi er samþætting Textílseturs Íslands (stofnað 2005) og Þekkingarsetursins á Blönduósi (stofnað 2012). Þar er rekin fjölbreytt starfsemi en áhersla er lögð á nýsköpunar-, þróunar- og samstarfsverkefni sem stuðla að atvinnuuppbygginu í tengslum við textíl, menningu og sögu svæðisins með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni.
Textílmiðstöð Íslands byggir á samstarfi við ýmis fyrirtæki og stofnanir á Norðurlandi vestra og víðar, bæði í rannsóknar- og þróunarverkefnum á sérsviðum stofnunarinnar og eflingu menntunar. Textílmiðstöð Íslands er hluti af Samtökum þekkingarsetra (SÞS).
Innan Textílmiðstöðvarinnar má finna:
- Ós Textíllistamiðstöð: Alþjóðleg vinnusmiðja ætluð listafólki, fræðafólki og hönnuðum í textíl þar sem hægt er að sækja um mánaðardvöl í samvinnurými Textílmiðstöðvarinnar.
- Textíllab: Fyrsta stafræna textílsmiðjan á Íslandi opnaði í maí 2021. Textílsmiðjan er útbúin stafrænum tækjum sem tengjast textílvinnslu, eins og vefnaði, prjóni, þæfingu og útsaumi. Þegar hefur verið fjárfest í stafrænum vefstól, prjónavél og útsaumsvél, nálaþæfingarvél, auk leiserskera og vínylprentara.
- Textílklasi: Textílmiðstöð Íslands vinnur að mótun Textílklasa í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV).
... more about "Textílmiðstöð Íslands"
EmailThis property is a special property in this wiki.