Munur á milli breytinga „Þekkingarsetur“
Lína 29: | Lína 29: | ||
'''Vestfirðir''' | '''Vestfirðir''' | ||
Háskólasetur Vestfjarða | [[Háskólasetur Vestfjarða]] [https://www.uw.is/ Háskólasetur Vestfjarða] er lítil stofnun á háskólastigi sem sett var á stofn árið 2005 en tók til starfa í janúar 2006. Við Háskólasetrið sjálft starfa að jafnaði um níu manns auk lausráðinna kennara. Í húsnæði Háskólaseturs starfa í heild yfir 50 manns við rannsóknir, kennslu og þjónustu hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum. | ||
Háskólasetrið er fjarnámssetur sem þjónar um 100 fjarnemum, það starfrækir meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun og sjávarbyggðafræði fyrir um 60-80 meistaranema auk einstaklingsmiðaðrar námsleið á meistarastigi í sjávartengdri nýsköpun sem nú er í endurskipulagningu. Þess utan býður Háskólasetrið upp á fjölbreytt sumarnámskeið. Háskólasetrið sér fjarnemum fyrir hópvinnuaðstöðu og lestrarsölum. | |||
Háskólasetur Vestfjarða er stærsta stofnunin í Vestrahúsinu á Ísafirði og leiðandi í samstarfi stofnana í rannsóknaklasa Vestfjarða. Alla jafna sinnir Háskólasetrið þó ekki rannsóknum nema í samstarfi við rannsóknarstofnanir innan og utan Vestfjarða. | |||
Útgáfa síðunnar 26. janúar 2022 kl. 13:44
Suðurland
Þekkingarsetur Vestmannaeyja Starfsemi stofnanna og fyrirtækja innan Þekkingarseturs Vestmannaeyja er fjölþætt og kemur víða við sögu, t.a.m. í atvinnulífi, ferðamálum, menningarstarfsemi og menntun.
Nýheimar - Þekkingarsetur á Hornafirði er samstarfshattur ólíkra stofnana sem starfa á sviði menntunar, menningar, nýsköpunar og rannsókna á Suðausturlandi.
Kirkjubæjarstofa Þekkingarsetur er rannsóknar- og fræðasetur á sviði náttúrufars, sögu og menningar. Markmið starfseminnar er að efla og styðja rannsóknir og fræðslu um náttúrufar, sögu og menningu héraðsins.
Kötlusetur á Vík er miðstöð fræðslu, menningar og ferðamála og þjónar margþættu hlutverki m.a. sem Gestastofa Kötlu jarðvangs, Menningarmiðstöð Mýrdælinga, Upplýsingamiðstöð, Safn- og sýningarrými.
Ölfus Cluster Þekkingarsetur er þekkingarklasi fyrirtækja og opinberra aðila sem koma að nýsköpun, vöruþróun og rannsóknum. Ölfus Cluster vinnur að uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu en með sérstakri áherslu á sjálfbæra matvælaframleiðslu.
Háskólafélag Suðurlands
Suðurnes
Þekkingarsetur Suðurnesja Markmið Þekkingarsetursins snúa meðal annars að: rannsóknum og þróun, háskólanámi og samþættingu þekkingarstarfs og símenntunar og samstarfi við aðrar menntastofnanir á Suðurnesjum.
Norðurland
Þekkingarnet Þingeyinga er símenntunar-, háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfar á grunni tveggja stofnana, símenntunarmiðstöðina Fræðslumiðstöð Þingeyinga og háskólanáms- og rannsóknasetursins Þekkingarseturs Þingeyinga.
AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem stundar háskólanám og sinnir fræði- og ritstörfum.
Þekkingarsetrið á Blönduósi
Vestfirðir
Háskólasetur Vestfjarða Háskólasetur Vestfjarða er lítil stofnun á háskólastigi sem sett var á stofn árið 2005 en tók til starfa í janúar 2006. Við Háskólasetrið sjálft starfa að jafnaði um níu manns auk lausráðinna kennara. Í húsnæði Háskólaseturs starfa í heild yfir 50 manns við rannsóknir, kennslu og þjónustu hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum.
Háskólasetrið er fjarnámssetur sem þjónar um 100 fjarnemum, það starfrækir meistaranám í haf- og strandsvæðastjórnun og sjávarbyggðafræði fyrir um 60-80 meistaranema auk einstaklingsmiðaðrar námsleið á meistarastigi í sjávartengdri nýsköpun sem nú er í endurskipulagningu. Þess utan býður Háskólasetrið upp á fjölbreytt sumarnámskeið. Háskólasetrið sér fjarnemum fyrir hópvinnuaðstöðu og lestrarsölum.
Háskólasetur Vestfjarða er stærsta stofnunin í Vestrahúsinu á Ísafirði og leiðandi í samstarfi stofnana í rannsóknaklasa Vestfjarða. Alla jafna sinnir Háskólasetrið þó ekki rannsóknum nema í samstarfi við rannsóknarstofnanir innan og utan Vestfjarða.
Austurland
Þekkingarsetur Vopnafirði