Ratsjáin
Vefsíða | |
---|---|
Tegund | Hraðall |
Netfang | asta.kristin@icelandtourism.is |
Ratsjáin er hraðall ætlaður stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Markmið hraðalsins er að styðja og efla þátttakendur við nýsköpunarhæfni, að hraða mikilvægum breytingaferlum og auka yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu. Hraðallinn fer fram yfir 6 mánaða tímabil og samanstendur af 7 lotum með heimafundum/jafningjaráðgjöf, fræðslu og erindum, verkefnavinnu og ráðgjöf.
Ratsjáin hóf göngu sína árið 2016 í samstarfi Ferðaklasans og Nýsköpunarmiðstöðvar en er nú á höndum Íslenski ferðaklasans, RATA og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) en hraðallinn hefur hlotið stuðning frá Ferðamálasamtökum höfuðborgarsvæðisins.
Ratsjáin er ætluð fyrirtækjum á landinu öllu en hefur að miklu leyti verið svæðisbundin eftir árum. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þátttakendur frá upphafi.
- Ratsjáin 2021 Þátttakendur í Ratsjánni 2021 sem fram fór á öllu landinu.
- Ratsjáin 2020 Þátttakendur í Ratsjánni 2020 sem fram fór á Norðurlandi eystra.
- Ratsjáin 2019 Þátttakendur í Ratsjánni 2019 sem fram fór á Reykjanesi
- og Norðurlandi vestra.
- Ratsjáin 2018 Þátttakendur í Ratsjánni 2018 sem fram fór á Vestfjörðum.
- Ratsjáin 2017 Þátttakendur í Ratsjánni 2017 sem fram fór á Austurlandi.
- Ratsjáin 2016 Þátttakendur í Ratsjánni 2016 sem fram fór á öllu landinu.