Austurland

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 13. desember 2021 kl. 13:57 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. desember 2021 kl. 13:57 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Stökkva á:flakk, leita

Austurland er 15.706 km² að flatarmáli og nær allt frá Vopnafirði í norðri og að Djúpavogshrepp í suðri. Á Austurlandi eru fjögur sveitarfélög, Vopnafjarðarhreppur, Múlaþing, Fljótsdalshreppur og Fjarðabyggð. Í landshlutanum búa rétt rúmlega 11.000 íbúar og eru það sveitarfélögin Múlaþing og Fjarðarbyggð sem eru fjölmennust með yfir 5.000 íbúa. Fámennast er Fljótsdalshreppur með tæplega 100 íbúa.

Í Sóknaráætlun Austfjarða 2020-2024 segir að „í landshlutanum eru sterkar atvinnugreinar sem byggja á staðbundnu hráefni og vinnuafl er stöðugt. Framfarir í atvinnulífinu hafa verið miklar en frumkvöðlastarf og nýsköpun er takmörkuð og skortur er á menntuðu starfsfólki.“

Lausnamót

Fyrsta lausnamót Hacking Hekla á Austurlandi fór fram 2021. Hacking Austurland var haldið á vegum Austurbrú og Nordic Food in Tourism í samstarfi við Hacking Hekla og Hugmyndaþorp, en yfirskrift mótsins var Bláa auðlindin. Áhersla var lögð á að vinna að því að þróa lausnir við áskorunum tengdum auðlindum hafsins.

Samvinnu- og/eða nýsköpunarrými

Austurbrú

Sköpunarmiðstöðin

Múlinn Neskaupsstað

Stuðningsumhverfi

Austurbrú

Nýsköpunarverkefni á Austurlandi