Austurland

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 9. desember 2021 kl. 12:11 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. desember 2021 kl. 12:11 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Stökkva á:flakk, leita

Austurland er 15.706 km² að flatarmáli og nær allt frá Vopnafirði í norðri og að Djúpavogshrepp í suðri. Á Austurlandi eru fjögur sveitarfélög, Vopnafjarðarhreppur, Múlaþing, Fljótsdalshreppur og Fjarðabyggð. Í landshlutanum búa rétt rúmlega 11.000 íbúar og eru það sveitarfélögin Múlaþing og Fjarðarbyggð sem eru fjölmennust með yfir 5.000 íbúa. Fámennast er Fljótsdalshreppur með tæplega 100 íbúa.

Í Sóknaráætlun Austfjarða 2020-2024 kemur fram að „í landshlutanum eru sterkar atvinnugreinar sem byggja á staðbundnu hráefni og vinnuafl er stöðugt. Framfarir í atvinnulífinu hafa verið miklar en frumkvöðlastarf og nýsköpun er takmörkuð og skortur er á menntuðu starfsfólki.“

Lausnamót

Fyrsta lausnamót Hacking Hekla á Austurlandi fór fram 2021. Hacking Austurland var haldið á vegum Austurbrú og Nordic Food in Tourism í samstarfi við Hacking Hekla og Hugmyndaþorp, en yfirskrift mótsins var Bláa auðlindin. Áhersla var lögð á að vinna því að þróa lausnir við eftirfarandi áskorunum tengdum bláu auðlindinni:

  • Auka verðmætasköpun í sjávarútvegi með því að nýta tækni og nýjar aðferðir á skapandi hátt?
  • Leiða saman sjávarútveg og landbúnað með því markmiði að stuðla að betri nýtingu afurða í báðum greinum?
  • Skapa einstaka matarupplifun með því að tengja saman sjávarútveg og ferðaþjónustu?
  • Stuðla að því að hægt sé að kaupa beint frá báti?

Hacking Austurland fór fram að stærstum hluta í gegnum Hugmyndaþorp, sem er stafræn leið til samsköpunar þróuð er af sprotafyrirtækinu Austan mána í samstarfi við Hacking Hekla. Þátttaka var öllum opin óháð staðsetningu. Þátttakendur fengu tækifæri til að kynnast nýtingu auðlinda á Norðurlandi, tengjast nýju fólki og eflast í að vinna ný verkefni út frá áskorunum svæðisins.

Samvinnu- og/eða nýsköðunarrými

Austurbrú

Sköpunarmiðstöðin

Múlinn Neskaupsstað

Stuðningsumhverfi

Austurbrú

Nýsköpunarverkefni á Austurlandi