Suðurland
Landshluti | |
---|---|
Íbúafjöldi | 32000 |
Flatarmál | 30966 km² |
Í Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024 segir að á „Suðurlandi er stuðlað að verðmætaaukningu í framleiðslu með því að hvetja til nýsköpunar og fullvinnslu afurða á þeim hráefnum sem þar verða til“. Jafnframt segir að „vilji [sé] til þess að fjölga störfum án staðsetningar svo stuðla megi að þeirri ásýnd að Suðurland sé eitt atvinnusvæði“.
Lausnamót
Lausnamótið Hacking Suðurland fór fram á Suðurlandi 2020 undir yfirskriftinni Í átt að sjálfbærri framtíð með matartengdri nýsköpun og var það hið fyrsta sem haldið var í mótaröð Hacking Hekla,sem ætlað er að ferðast um landið og draga fram frumkvöðlastarf á landsbyggðinni og tengja saman frumkvöðlasenurnar í dreifbýli og þéttbýli á Íslandi. Áhersla var lögð á að vinna að því að þróun lausna við áskorunum tengdum auðlindum hafsins. Hacking Suðurland var haldið á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga SASS og Nordic Food in Tourism í samstarfi við Hacking Hekla og Hugmyndaþorpi Austan mána.
Hraðlar
Startup Orkídea er viðskiptahraðall á vegum fyrirtækisins Orkídeu sem er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi en að því standa Landsvirkjun, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga SASS, Landbúnaðarháskóli Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Startup Orkídea leggur áherslu á verkefni í hátæknimatvælaframleiðslu og líftækni en verkefnið hóf göngu sína 2020 í samstarfi við Icelandic Startups.
Samvinnu- og/eða nýsköpunarrými
Fjölheimar á Selfossi hýsir stofnanir og fyrirtæki og býður að auki fundarsali og kennslustofur, kennslueldhús, lesstofu fyrir nemendur og skrifborðsaðstöðu í samvinnurými til útleigu.
Hreiðrið á Selfossi er staðsett í Fjölheimum, en tilgangur þess er að styðja við og efla frumkvöðla á Suðurlandi. Hreiðrinu er stýrt af Háskólafélagi Suðurlands en samstarf um frumkvöðlahandleiðslu er við ráðgjafa á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga/SASS, FabLab Selfoss og Atorku auk leiðara (e. mentors) úr sunnlensku samfélagi býður frumkvöðlum vinnuaðstöðu.
Verið vinnustofa í Þorlákshöfn er rekið af Sveitarfélagnu Ölfusi, Landsbankanum og Þekkingarsetrinu Ölfus Cluster en þar er boðið uppá samvinnurými.
Kirkjubæjarstofa Þekkingarsetur á Kirkjubæjarklaustri hýsir stofnanir ásamt því að bjóða vinnuaðstöðu fyrir sjálfstætt starfandi einstaklinga.
Kötlusetur í Vík er menningar- og upplýsingasetur sem býður uppá námsver og fundaraðstöðu.
Annað stuðningsumhverfi
Orkídea er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi á vegum Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Félagið hefur að markmiði að auka verðmætasköpun og greiða veg orkutengdra tækifæra, einkum á sviði hátæknimatvælaframleiðslu og líftækni, en ætlunin er að efla nýsköpun og rannsóknir á nýtingu grænnar orku og koma á öflugu samstarfi við bæði fræðasamfélagið og atvinnulífið. Orkídea er staðsett á Selfossi.
Háskólafélag Suðurlands er staðsett á Selfossi en tilgangur félagsins er að auka búsetugæði og styrkja efnahag á Suðurlandi með uppbyggingu þekkingarsamfélags. Félagið, sem er í eigu sveitarfélaganna á Suðurlandi, heldur utanum Hreiðrið; aðstöðu og stuðning fyrir frumkvöðla, les- og prófaaðstöðu fyrir námsmenn, vísindasjóð, rannsóknarklasa ásamt því að standa fyrir viðburðum og námskeiðum. Rannsóknarklasi Háskólafélags Suðurlands samanstendur af stofnununum Háskólafélagi Suðurlands, Reykjum í Ölfusi og Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á sama stað, Rannsóknarmiðstöð HÍ í jarðskjálftaverkfræði HÍ á Selfossi, Kennaraháskóla Íslands á Laugarvatni, Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti og Kirkjubæjarstofu á Kirkjubæjarklaustri.
Ölfus Cluster Þekkingarsetur er þekkingarklasi fyrirtækja og opinberra aðila sem koma að nýsköpun, vöruþróun og rannsóknum. Ölfus Cluster vinnur að uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu en með sérstakri áherslu á sjálfbæra matvælaframleiðslu.
Þekkingarsetur Vestmannaeyja er samstarfsvettvangur stofnanna og fyrirtækja á sviði nýsköpunar, rannsókna, náms og fræðslu.
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi Rannsóknarsetur staðsett á Laugarvatni. Grunn- og hagnýtar rannsóknir á náttúrunni þar sem tvinnað er saman langtímarannsóknum og styttri verkefnum tengdrum áhrifum landnotkunar á lífríki, tengslum milli náttúrulegs breytileika í tíma og rúmi (svo sem vegna veðurfars, gróðurframvindu og jarðfræði) og dýrastofna og stofnrannsókna á farfuglum sem byggja á að fylgja merktum einstaklingum milli landa og kynslóða.
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum Rannsóknarsetur staðsett í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Rannsóknir setursins snúa einkum að háhyrningum; hegðun, hljóðum og ferðum þeirra.
Kirkjubæjarstofa Þekkingarsetur Markmið starfseminnar er að efla og styðja rannsóknir og fræðslu um náttúrufar, sögu og menningu héraðsins. Lögð er áhersla á að starfsemin sé í fullu samræmi bæði við áherslur í stefnumörkun sveitarfélagsins og kröfur og aðstæður í nútíma upplýsinga- og þekkingarþjóðfélagi.
Nýsköpunarverkefni á Suðurlandi
Nafn | Staðsetning | Lýsing | |
---|---|---|---|
KindaKol | Þykkvabær | 1000 Ára Sveitaþorp þróar vöruna Kindakol, sem eru sjálfbær og vistvæn iðnaðarkol unnin úr lífmassa líkt og kindataði og hampi. | |
Krakkakropp | Framleiðsla á íslenskum barnamat úr grænmeti sem ekki nýtist í hefðbundnar söluvörur. | ||
Livefood ehf | Hveragerði | Framleiðsla á handgerðum grænkeraostum úr íslensku hráefni. | |
Viskur | Þróun á grænkeramatvöru þar sem smáþörungaprótein sem líkjast íslenskum sjávarafurðum koma í stað dýraafurða. | ||
Icelandic Lava Show | Hvolsvöllur | Eldfjalla og jarðskjálftasýning. | |