Hacking Norðurland
Hacking Norðurland var haldið á vegum samtaka og sveitarfélaga á Norðurlandi í samstarfi við Hacking Hekla, en yfirskrift mótsins var Matur, vatn, orka: Leiðin að sjálfbærni. Áhersla var lögð á að vinna að hugmyndum sem tengjast sjálfbærri nýtingu auðlinda svæðisins með tilliti til fyrrgreindra þátta.
Hacking Norðurland fór fram að stærstum hluta í gegnum Hugmyndaþorp, sem er stafræn leið til samsköpunar þróuð af sprotafyrirtækinu Austan mána í samstarfi við Hacking Hekla. Þátttaka var öllum opin óháð staðsetningu. Þátttakendur fengu tækifæri til að kynnast nýtingu auðlinda á Norðurlandi, tengjast nýju fólki og eflast í að vinna ný verkefni út frá áskorunum svæðisins.
Aðstandendur
Hacking Hekla, Eimur, Nordic Food in Tourism, landssamtök Norðurlands eystra SSNE, landssamtök Norðurlands vestra SSNV og Nýsköpun í norðri.
Tímarammi
15.-18. apríl 2021
Dómnefnd
Snjólaug Ólafsdóttir yfirverkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Ey á Íslandi, Brynja Laxdal ráðgjafi og fyrrum verkefnastjóri Matarauðs Íslands, Haraldur Hallgrímsson forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun, Huld Magnúsdóttir framkvæmdastjóri nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Rannveig Björnsdóttir dósent við auðlindadeild Háskólans á Akureyri.
Verðlaun
Grænlamb - Keldhverfskt kjöt af algrónu landi Verkefnið felur í sér að búa til vörumerki fyrir keldhverfska sauðfjárbændur sem er vottun um að féð gangi á velgrónu og sjálfbæru landi. Samhliða því er ætlunin að auka verðmæti sauðfjárafurða Kelduhverfis og um leið gefa neytendum tækifæri til þess að kaupa kolefnislausan íslenskan próteingjafa. Að baki hugmyndarinnar standa frumkvöðlarnir Berglind Ýr Ingvarsdóttir, Guðríður Baldvinsdóttir og Salbjörg Matthíasdóttir sem eiga það allt sameiginlegt að vera sauðfjárbændur í Kelduhverfi.
Aðrar viðurkenningar
- Geothermal Ginger hlaut viðurkenningu fyrir frumlegasta verkefnið. Markmið verkefnisins er að rækta engifer og vinna úr því vörur sem og opna augu fleiri fyrir ræktun á áður innfluttum vörum.
- Automated container farms for fresh and healthy vegetables hlaut viðurkenningu fyrir vinsælasta verkefnið en verkefnið byggist á því að þróa fullkomlega sjálfvirkar ræktunareiningar í flutningagáma.
- Amber Monroe viðurkenningu fyrir Virkasta þátttakanda lausnamótsins en Amber var í forsvari fyrir verkefnið Ísponica þar sem unnið er að því að samtvinna fiskeldi og ræktun á matjurtum með vatnsrækt (e. aquaponics).