Sauðagull
Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 4. febrúar 2022 kl. 15:06 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Útgáfa frá 4. febrúar 2022 kl. 15:06 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Vefsíða | |
---|---|
Tegund | Verkefni |
Netfang | saudagull@saudagull.is |
Staður | Egilsstaðir |
Landshluti | Austurland |
Sauðagull ehf. er staðsett á Egilsstöðum á Austurlandi og er í eigu Ann-Marie Schlutz. Sauðagull býður upp á matvörur framleiddar úr sauðamjólk.
„Sauðamjólk var um aldir nýtt til manneldis hér á landi og unnið úr henni skyr, smjör og ostar. Þekkingin á þessu íslenska handverki hefur að mestu glatast.“
Markmið Sauðagulls er að endurvekja þetta handverk með því að framleiða nútíma matvörur unnar úr sauðamjólk s.s. osta, konfekt og ís. Með því er stutt við íslenska sauðfjárrækt og hvatt til þess að nýta þetta næringarríka hráefni.
Verkefnið Sauðagull var valið til þátttöku í viðskiptahraðlinum Til sjávar og sveita árið 2020.