Munur á milli breytinga „Textílmiðstöð Íslands“
Lína 1: | Lína 1: | ||
{{Eining|www=https://www.textilmidstod.is/|email=textilmidstod@textilmidstod.is|address=Árbraut 31|postcode=540|image=Textílmiðstöð Íslands.png|region=Norðurland vestra}} | {{Eining|www=https://www.textilmidstod.is/|email=textilmidstod@textilmidstod.is|address=Árbraut 31|postcode=540|image=Textílmiðstöð Íslands.png|region=Norðurland vestra|Town=Blönduós}} | ||
'''[https://www.textilmidstod.is/ Textílmiðstöð Íslands]''' á Blönduósi er samþætting Textílseturs Íslands (stofnað 2005) og Þekkingarsetursins á Blönduósi (stofnað 2012). Þar er rekin fjölbreytt starfsemi en áhersla er lögð á nýsköpunar-, þróunar- og samstarfsverkefni sem stuðla að atvinnuuppbygginu í tengslum við textíl, menningu og sögu svæðisins með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni. | '''[https://www.textilmidstod.is/ Textílmiðstöð Íslands]''' á Blönduósi er samþætting Textílseturs Íslands (stofnað 2005) og Þekkingarsetursins á Blönduósi (stofnað 2012). Þar er rekin fjölbreytt starfsemi en áhersla er lögð á nýsköpunar-, þróunar- og samstarfsverkefni sem stuðla að atvinnuuppbygginu í tengslum við textíl, menningu og sögu svæðisins með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni. |
Útgáfa síðunnar 20. janúar 2022 kl. 15:13
Vefsíða | |
---|---|
Netfang | textilmidstod@textilmidstod.is |
Heimilisfang | Árbraut 31, 540 |
Landshluti | Norðurland vestra |
Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi er samþætting Textílseturs Íslands (stofnað 2005) og Þekkingarsetursins á Blönduósi (stofnað 2012). Þar er rekin fjölbreytt starfsemi en áhersla er lögð á nýsköpunar-, þróunar- og samstarfsverkefni sem stuðla að atvinnuuppbygginu í tengslum við textíl, menningu og sögu svæðisins með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni.
Textílmiðstöð Íslands byggir á samstarfi við ýmis fyrirtæki og stofnanir á Norðurlandi vestra og víðar, bæði í rannsóknar- og þróunarverkefnum á sérsviðum stofnunarinnar og eflingu menntunar. Textílmiðstöð Íslands er hluti af Samtökum þekkingarsetra (SÞS).
Innan Textílmiðstöðvarinnar má finna:
- Ós Textílmiðstöð: Alþjóðleg vinnusmiðja ætluð listafólki, fræðafólki og hönnuðum í textíl þar sem hægt er að sækja um mánaðardvöl í samvinnurými Textílmiðstöðvarinnar.
- Textíllab: Fyrsta stafræna textílsmiðjan á Íslandi opnaði í maí 2021. Textílsmiðjan er útbúin stafrænum tækjum sem tengjast textílvinnslu, eins og vefnaði, prjóni, þæfingu og útsaumi. Þegar hefur verið fjárfest í stafrænum vefstól, prjónavél og útsaumsvél, nálaþæfingarvél, auk leiserskera og vínylprentara.
Textílmiðstöð Íslands vinnur nú að mótun Textílklasa í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV).