Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 17. janúar 2022 kl. 13:08 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. janúar 2022 kl. 13:08 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) (Ný síða: [https://www.ssnv.is/is Samtökin nefnast Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra], skammstafað SSNV. Starfssvæði samtakanna afmarkast af sveitarfélagamörkum allra sveitarf...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á:flakk, leita

Samtökin nefnast Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, skammstafað SSNV. Starfssvæði samtakanna afmarkast af sveitarfélagamörkum allra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, allt frá Almenningsnöf í austri að Stikuhálsi milli Bitru og Hrútafjarðar í vestri. Heimili og varnarþing samtakanna er á skrifstofu SSNV á Hvammstanga.


Markmið samtakanna eru:

  • að efla samvinnu sveitarfélaga og auka þekkingu sveitarstjórnarmanna á verkefnum sveitarstjórna
  • að vinna að hverjum þeim verkefnum sem aðildarsveitarfélög eða löggjafinn kunna að fela þeim
  • að styrkja stöðu aðildarsveitarfélaganna á landsvísu
  • að stuðla að eflingu atvinnulífs á Norðurlandi vestra