Samtök þekkingarsetra

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 17. nóvember 2021 kl. 15:00 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. nóvember 2021 kl. 15:00 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) (Ný síða: Samtök þekkingarsetra (SÞS) voru stofnuð 22. apríl 2020 en um er að ræða netverk þekkingarsetra á landsbyggðinni sem starfa samkvæmt samningi við mennta- og menningarmál...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á:flakk, leita

Samtök þekkingarsetra (SÞS) voru stofnuð 22. apríl 2020 en um er að ræða netverk þekkingarsetra á landsbyggðinni sem starfa samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Alls eru starfrækt sjö þekkingarsetur víðsvegar um landið.

Meðal samningsbundinna verkefna setranna eru rannsóknir og þróun til eflingar byggðar, þjónusta við háskólanema, hagnýting og miðlun þekkingar sem og efling nýsköpunar, atvinnu og samfélagsþróunar. Hin nýstofnuðu samtök hafa þann tilgang að efla samvinnu setranna á landsbyggðinni, gæta sameiginlegra hagsmuna þeirra og efla skilning á mikilvægi starfseminnar.

Hugrún Harpa, forstöðumaður Nýheima þekkingarseturs á Höfn í Hornafirði, er fyrsti formaður samtakanna. Fyrsti ársfundur SÞS var haldinn á Höfn á haustmánuðum 2020.