Kaupvangur

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 31. janúar 2022 kl. 13:42 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2022 kl. 13:42 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Stökkva á:flakk, leita

Austurbrú vinnur að uppbyggihngu fræða- og þekkingarseturs í Kaupvangi á Vopnafirði. Markmið verkefnisins er að vinna að eflingu mennta-, menningar-, fræða- og atvinnulífs á Vopnafirði með þeirri sérfræðiþekkingu sem til er innan Austurbrúar.

Starfsstöð Austurbrúar á Vopnafirði er í menningarhúsinu Kaupvangi. Þar er einn verkefnastjóri í fullu starfi sem hefur umsjón með Kaupvangsverkefnunum. Grundvöllur starfsins í Kaupvangi er þjónusta við fjarnema á háskólastigi en í Kaupvangi er þeim boðið upp á námsaðstöðu og aðstoð við próftöku. Auk þess er verkefnastjóri Austurbrúar á Vopnafirði tengiliður við sveitarfélagið í ýmsum verkefnum á sviði mennta- menningar- og atvinnuþróunarmála.