Munur á milli breytinga „Rannsóknarsetur“
Úr Vistkerfi nýsköpunar
(Ný síða: Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands hefur sett upp víða um landið rannsóknarsetur í þeim tilgangi að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni, auka möguleika...) |
|||
Lína 2: | Lína 2: | ||
===='''Vesturland'''==== | ===='''Vesturland'''==== | ||
*[https://www.hi.is/rannsoknasetursnaefellsnes Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi] Rannsóknarsetur staðsett í Stykkishólmi. Viðfangsefni setursins er starfssvæði Snæfellsnes og Breiðafjarðar. Áhersla er lögð á rannsóknir á sérstæðri og alþjóðlega mikilvægri náttúru Breiðafjarðar, Snæfellsness og norðanverðs Faxaflóa. | *[[Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi]] [https://www.hi.is/rannsoknasetursnaefellsnes Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi] Rannsóknarsetur staðsett í Stykkishólmi. Viðfangsefni setursins er starfssvæði Snæfellsnes og Breiðafjarðar. Áhersla er lögð á rannsóknir á sérstæðri og alþjóðlega mikilvægri náttúru Breiðafjarðar, Snæfellsness og norðanverðs Faxaflóa. | ||
===='''Vestfirðir'''==== | ===='''Vestfirðir'''==== | ||
*[https://www.hi.is/rannsoknaseturstrandir Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Ströndum] Rannsóknarsetur staðsett á Hólmavík. Rannsóknir í þjóðfræði og sérstök áhersla á miðlun og hagnýtingu þjóðfræðilegrar þekkingar. Að auki er margvíslegt samstarf við listafólk, fræðimenn og menningarstofnanir á Ströndum. | *[https://www.hi.is/rannsoknaseturstrandir Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Ströndum] Rannsóknarsetur staðsett á Hólmavík. Rannsóknir í þjóðfræði og sérstök áhersla á miðlun og hagnýtingu þjóðfræðilegrar þekkingar. Að auki er margvíslegt samstarf við listafólk, fræðimenn og menningarstofnanir á Ströndum. |
Útgáfa síðunnar 2. febrúar 2022 kl. 12:32
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands hefur sett upp víða um landið rannsóknarsetur í þeim tilgangi að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni, auka möguleika almennings til menntunar og styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf. Háskóli Íslands rekur eftirfarandi rannsóknarsetur:
Vesturland
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi Rannsóknarsetur staðsett í Stykkishólmi. Viðfangsefni setursins er starfssvæði Snæfellsnes og Breiðafjarðar. Áhersla er lögð á rannsóknir á sérstæðri og alþjóðlega mikilvægri náttúru Breiðafjarðar, Snæfellsness og norðanverðs Faxaflóa.
Vestfirðir
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Ströndum Rannsóknarsetur staðsett á Hólmavík. Rannsóknir í þjóðfræði og sérstök áhersla á miðlun og hagnýtingu þjóðfræðilegrar þekkingar. Að auki er margvíslegt samstarf við listafólk, fræðimenn og menningarstofnanir á Ströndum.
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum Rannsóknarsetur staðsett í Bolungarvík. Grunn- og hagnýtar rannsóknir á lífríki sjávar og strandsvæða og nýtingu sjávarafurða. Flest verkefni setursins eru unnin með styrkjum frá samkeppnissjóðum og því innan ákveðins tímaramma gjarnan með þátttöku rannsóknanema. Langtímamarkmið með verkefnunum er að byggja upp miðstöð þekkingar og aðstöðu til rannsókna á nærsjó á Vestfjörðum, stuðla að notkun vísindalegra gagna í nýtingu strandsvæða og að skilja þátt sjávarafurða í þróun byggða á Íslandi.
Norðurland
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurland vestra Rannsóknarsetur staðsett á Skagaströnd. Meginsvið setursins er sagnfræði. Frá ársbyrjun 2019 hefur rannsóknasetrið unnið að gerð gagnagrunns sáttanefndabóka í samstarfi við Þjóðskjalasafn Íslands og Héraðsskjalasafn Skagfirðinga.
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Húsavík Megináhersla setursins eru rannsóknir tengdar hvölum en einnig svifi, sjófuglum og loftslagsrannsóknum og öðru sem tengist rannsóknum á hafinu og lífríki þess.
Austurland
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Austurlandi Rannsóknarsetur staðsett á Egilstöðum. Rannsóknir á sögu, samfélagi og náttúru á Austurlandi með sérstaka áherslu á tengingu manns og náttúru.
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík Megináhersla rannsókna eru jarðvísindi og málvísindi. Helstu verkefni lúta að rannsóknum og miðlun rannsóknarniðurstaðna, sem og kennslu og leiðbeiningu framhaldsnema í jarðvísindum.
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Hornafirði Rannsóknarsetur staðsett í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Sérstök áhersla er lögð á rannsóknir sem tengjast ferðaþjónustu em markmið setursins er að auka þekkingu á náttúru og efla menningu og samfélag á landsbyggðinni.
Suðurland
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi Rannsóknarsetur staðsett á Laugarvatni. Grunn- og hagnýtar rannsóknir á náttúrunni þar sem tvinnað er saman langtímarannsóknum og styttri verkefnum tengdrum áhrifum landnotkunar á lífríki, tengslum milli náttúrulegs breytileika í tíma og rúmi (svo sem vegna veðurfars, gróðurframvindu og jarðfræði) og dýrastofna og stofnrannsókna á farfuglum sem byggja á að fylgja merktum einstaklingum milli landa og kynslóða.
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum Rannsóknarsetur staðsett í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Rannsóknir setursins snúa einkum að háhyrningum, hegðun, hljóðum og ferðum þeirra.
Suðurnes
- Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum Rannsóknarsetur staðsett í Sandgerði. Setrið vinnur að og aðstoðar við rannsóknir á náttúru Suðurnesja og náttúru Íslands.