Munur á milli breytinga „Hacking Austurland“
(Ný síða: Fyrsta lausnamót Hacking Hekla á Austurlandi fór fram í október 2021. Hacking Austurland var haldið á vegum [https://austurbru.is/ Austurbrú] og [https://nordicfoodint...) |
|||
Lína 19: | Lína 19: | ||
=== Verðlaun === | === Verðlaun === | ||
[https://xn--hugmyndaorp-pib.hackinghekla.is/is/experiment/1423/?fbclid=IwAR2P7ioSvvmrgGU6kOHpCpawMvaiGShRdpgoCtE3cBELOw4-VLGxA2DtCjU Sjávarylur: Ylrækt - Veitingar - Sjóböð] Verkefnið samtvinnar | [https://xn--hugmyndaorp-pib.hackinghekla.is/is/experiment/1423/?fbclid=IwAR2P7ioSvvmrgGU6kOHpCpawMvaiGShRdpgoCtE3cBELOw4-VLGxA2DtCjU Sjávarylur: Ylrækt - Veitingar - Sjóböð] Verkefnið samtvinnar sjávarútveg og landbúnað auk ferðamennsku og vinnur að betri nýtingu auðlindanna í þágu náttúrunnar. Að verkefninu stendur Íris Birgisdóttir. | ||
==== Aðrar viðurkenningar ==== | ==== Aðrar viðurkenningar ==== | ||
* Underwater Adventure hlaut viðurkenningu sem Frumlegasta hugmyndin. Að verkefninu standa Guðrún Ástrós Bergsveinsdóttir og Alex Grenier. | * Underwater Adventure hlaut viðurkenningu sem Frumlegasta hugmyndin en hún gengur út á að standsetja neðansjávar skemmti-/rannsóknargarð með sokknum skipum og bátum. Meðal þess sem lögð verður áhersla á er að bjóða rannsakendum að kortleggja uppbyggingu lífríkis við slíkar aðstæður auk þess að kynna sögu staðarins fyrir ferðamönnum á nýstárlegan hátt. Að verkefninu standa Guðrún Ástrós Bergsveinsdóttir og Alex Grenier. | ||
* The Icelandic Seaweed experience var valið sem Vinsælasta verkefnið. | * The Icelandic Seaweed experience var valið sem Vinsælasta verkefnið en það byggir á að bjóða leiddar ferðir sem innihalda þaratínslu, fróðleik um ólíkar gerðir hans og vinnslu auk matarupplifunar. Að verkefninu standa Oliwia Data og Inna Hallik. | ||
* Viðurkenningu fyrir virkni hlaut þátttakandinn Ottó Elíasson en hann gaf | * Viðurkenningu fyrir virkni hlaut þátttakandinn Ottó Elíasson en hann virkur þátttakandi í umræðum og gaf fjölmörgum verkefnum endurgjöf. |
Útgáfa síðunnar 13. desember 2021 kl. 13:45
Fyrsta lausnamót Hacking Hekla á Austurlandi fór fram í október 2021. Hacking Austurland var haldið á vegum Austurbrú og Nordic Food in Tourism í samstarfi við Hacking Hekla og Hugmyndaþorp, en yfirskrift mótsins var Bláa auðlindin. Áhersla var lögð á að vinna að því að þróa lausnir við áskorunum tengdum auðlindum hafsins:
- Auka verðmætasköpun í sjávarútvegi með því að nýta tækni og nýjar aðferðir á skapandi hátt?
- Leiða saman sjávarútveg og landbúnað með því markmiði að stuðla að betri nýtingu afurða í báðum greinum?
- Skapa einstaka matarupplifun með því að tengja saman sjávarútveg og ferðaþjónustu?
- Stuðla að því að hægt sé að kaupa beint frá báti?
Hacking Austurland fór fram að stærstum hluta í gegnum Hugmyndaþorp, sem er stafræn leið til samsköpunar þróuð af sprotafyrirtækinu Austan mána í samstarfi við Hacking Hekla. Þátttaka var öllum opin óháð staðsetningu. Þátttakendur fengu tækifæri til að kynnast nýtingu auðlinda á Austurlandi, tengjast nýju fólki og eflast í að vinna ný verkefni út frá áskorunum svæðisins.
Aðstandendur
Hacking Hekla, Austurbrú og Nordic Food in Tourism.
Tímarammi
30. september - 2. október 2021
Dómnefnd
Þór Sigfússon frá Sjávarklasanum, Margrét Ormslev frá Brunnur Ventures, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir hjá Íslenska ferðaklasanum, Guðný Káradóttir hjá Loftslagsráði og Sveinn Margeirsson sveitarstjóri í Skútustaðahreppi
Verðlaun
Sjávarylur: Ylrækt - Veitingar - Sjóböð Verkefnið samtvinnar sjávarútveg og landbúnað auk ferðamennsku og vinnur að betri nýtingu auðlindanna í þágu náttúrunnar. Að verkefninu stendur Íris Birgisdóttir.
Aðrar viðurkenningar
- Underwater Adventure hlaut viðurkenningu sem Frumlegasta hugmyndin en hún gengur út á að standsetja neðansjávar skemmti-/rannsóknargarð með sokknum skipum og bátum. Meðal þess sem lögð verður áhersla á er að bjóða rannsakendum að kortleggja uppbyggingu lífríkis við slíkar aðstæður auk þess að kynna sögu staðarins fyrir ferðamönnum á nýstárlegan hátt. Að verkefninu standa Guðrún Ástrós Bergsveinsdóttir og Alex Grenier.
- The Icelandic Seaweed experience var valið sem Vinsælasta verkefnið en það byggir á að bjóða leiddar ferðir sem innihalda þaratínslu, fróðleik um ólíkar gerðir hans og vinnslu auk matarupplifunar. Að verkefninu standa Oliwia Data og Inna Hallik.
- Viðurkenningu fyrir virkni hlaut þátttakandinn Ottó Elíasson en hann virkur þátttakandi í umræðum og gaf fjölmörgum verkefnum endurgjöf.