Þekkingarnet Þingeyinga

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 24. janúar 2022 kl. 14:30 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. janúar 2022 kl. 14:30 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|Þekkingarnet Þingeyinga [https://hac.is/ Þekkingarnet Þingeyinga] er símenntunar-, háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfar á...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á:flakk, leita
Þekkingarnet Þingeyinga

Þekkingarnet Þingeyinga er símenntunar-, háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfar á grunni tveggja stofnana er sameinaðar voru árið 2006. Annars vegar er um að ræða símenntunarmiðstöðina Fræðslumiðstöð Þingeyinga og hins vegar háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfaði undir nafni Þekkingarseturs Þingeyinga fram að sameiningunni. Símenntunarstarfsemin hófst árið 1999 um svipað leyti og aðrar símenntunarstöðvar á landinu hófu starfsemi. Háskólanáms- og rannsóknahlutinn fór hins vegar af stað árið 2003 samhliða Náttúrustofu Norðausturlands, sem starfar undir sama þaki og höfuðstöðvar Þekkingarnetsins á Húsavík.