Eimur

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 17. janúar 2022 kl. 12:22 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. janúar 2022 kl. 12:22 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|Eimur [https://www.eimur.is/ '''Eimur'''] er staðsett á Norðurlandi eystra. Eimur er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Norðurorku, Orkuveitu Húsavík...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Stökkva á:flakk, leita
Eimur

Eimur er staðsett á Norðurlandi eystra. Eimur er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Norðurorku, Orkuveitu Húsavíkur og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Markmið verkefnisins er að bæta nýtingu orkuauðlinda og auka nýsköpun í orkumálum á Norðausturlandi. Ætlunin með samstarfinu er meðal annars að byggja upp atvinnulíf og auka verðmætasköpun á svæðinu, með sérstakri áherslu á sjálfbærni, grænar lausnir, nýsköpun og hátækni.

Sumarið 2020 var ákveðið að endurfjármagna verkefnið til annarra þriggja ára, og mun það því starfa hið minnsta fram til ársins 2023.


Hjá Eimi starfa í byrjun árs 2022:

  • Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir framkvæmdastjóri
  • Ottó Elíasson Rannsókna- og þróunarstjóri
  • Gunnar Orri Ólafsson Jensen Verkefnastjóri