Rannsóknar- og þekkingarsetur
Fjölmörg rannsóknar- og þekkingarsetur eru staðsett víða um land. Setrin sinna fjölþættum rannsóknum á menningu og lífríki Íslands.
Rannsóknarsetur
Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands hefur sett upp víða um landið rannsóknarsetur í þeim tilgangi að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni, auka möguleika almennings til menntunar og styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf. Háskóli Íslands rekur eftirfarandi rannsóknarsetur:
Vesturland
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi
Rannsóknarsetur staðsett í Stykkishólmi. Viðfangsefni setursins er starfssvæði Snæfellsnes og Breiðafjarðar. Áhersla er lögð á rannsóknir á sérstæðri og alþjóðlega mikilvægri náttúru Breiðafjarðar, Snæfellsness og norðanverðs Faxaflóa.
Vestfirðir
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Ströndum
Rannsóknarsetur staðsett á Hólmavík. Rannsóknir í þjóðfræði og sérstök áhersla á miðlun og hagnýtingu þjóðfræðilegrar þekkingar. Að auki er margvíslegt samstarf við listafólk, fræðimenn og menningarstofnanir á Ströndum.
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum
Rannsóknarsetur staðsett í Bolungarvík. Grunn- og hagnýtar rannsóknir á lífríki sjávar og strandsvæða og nýtingu sjávarafurða. Flest verkefni setursins eru unnin með styrkjum frá samkeppnissjóðum og því innan ákveðins tímaramma gjarnan með þátttöku rannsóknanema. Langtímamarkmið með verkefnunum er að byggja upp miðstöð þekkingar og aðstöðu til rannsókna á nærsjó á Vestfjörðum, stuðla að notkun vísindalegra gagna í nýtingu strandsvæða og að skilja þátt sjávarafurða í þróun byggða á Íslandi.
Norðurland
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurland vestra
Rannsóknarsvið setursins á Skagaströnd er sagnfræði. Við setrið eru stundaðar sagnfræðirannsóknir af ýmsu tagi en frá ársbyrjun 2019 hefur rannsóknasetrið unnið að gerð gagnagrunns sáttanefndabóka í samstarfi við Þjóðskjalasafn Íslands og Héraðsskjalasafn Skagfirðinga.
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Húsavík
Austurland
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Austurlandi
Rannsóknarsetur staðsett á Egilstöðum. Rannsóknir á sögu, samfélagi og náttúru á Austurlandi með sérstaka áherslu á tengingu manns og náttúru.
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Breiðdalsvík
Rannsóknarsetur staðsett á Breiðdalsvík. Megináhersla rannsókna eru jarðvísindi og málvísindi. Helstu verkefni lúta að rannsóknum og miðlun rannsóknarniðurstaðna, sem og kennslu og leiðbeiningu framhaldsnema í jarðvísindum.
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Hornafirði
Rannsóknarsetur staðsett í Nýheimum á Höfn í Hornafirði. Sérstök áhersla er lögð á rannsóknir sem tengjast ferðaþjónustu em markmið setursins er að auka þekkingu á náttúru og efla menningu og samfélag á landsbyggðinni.
Suðurland
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum
Suðurnes
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum