Startup Orkídea
Vefsíða | |
---|---|
Tegund | Hraðall |
Netfang | hello@icelandicstartups.is |
Startup Orkídea er hraðall ætlaður rótgrónum fyrirtækjum sem vinna að sjálfbærum lausnum á sviði hátæknimatvælaframleiðslu og líftækni.
Hraðallinn nær yfir þriggja mánaða tímabil og er skipt upp í þrjár þriggja daga vinnusmiðjur auk fjarfunda, en hraðlinum lýkur með kynningum þátttakenda fyrir hóp fjárfesta. Um fimm teymi taka þátt í hraðlinum og býðst þeim vinnuaðstaða í hugmyndahúsinu Grósku meðan á hraðlinum stendur auk 1 milljón kr. styrks frá Landsvirkjun gegn kauprétti.
Hraðallinn hóf göngu sína árið 2020 og hann er samstarfsverkefni Orkídeu og Icelandic Startups. Orkídea byggir á samstarfi Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Landbúnaðarháskóla Íslands og Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og snýr að uppbyggingu orkutengdra tækifæra framtíðarinnar á Suðurlandi.
Nýsköpunarverkefni Startup Orkídea 2021
1000 Ára Sveitaþorp: Kindakol, vistvæn leið til að grilla og reykja matvæli.
Krakkakropp: Einstakt barnanasl úr íslensku grænmeti sem bráðnar í munni.
Livefood ehf: Ostar úr plönturíki íslenskrar náttúru og sjálfbærra auðlinda.
Sif Biotech: Líftæknifyrirtæki sem nýtir plöntur sem sveigjanlegar framleiðslueiningar fyrir próteinafurðir og líftæknilyf.
Viskur: Framleiðir grænkeramat sem líkist íslenskum sjávarafurðum.
Upptaka af streymi frá lokakynningum verkefna Startup Orkídeu á fjárfestadegi 19. mars 2021.