Nýsköpunarmót

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 1. febrúar 2022 kl. 15:26 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. febrúar 2022 kl. 15:26 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Stökkva á:flakk, leita


thumb
Vefsíða
TegundLausnamót
Netfanghildur.s.arnardottir@rikiskaup.is
Loading map...


Nýsköpunarmót er lausnamót á vegum Ríkiskaupa og Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Mótið er vettvangur fyrir opinbera aðila og fyrirtæki að tengjast. Opinberir aðilar (stofnanir og sveitarfélög) setja fram áskoranir eða þarfir og óska eftir fjölbreyttum lausnum frá sprotum og fyrirtækjum.

Á Nýsköpunarmóti gefst aðilum tækifæri á að bóka stutta veffundi með öðrum aðilum, ýmist opinberum eða fyrirtækjum, og gefst þannig tækifæri á að kynna mögulegar lausnir á áskorunum opinberra aðila með það fyrir augum að kynna sig, fá hugsanleg tækifæri til þróunar og rannsóknaverkefna eða vera hugmynd að nýjum verkefnum sem í framhaldinu færu svo í opinbera innkaupaferla.

Opinberir aðilar geta nýtt sér nýsköpun á margvíslegan hátt í formlegum innkaupum, útboðum sem eru auglýst sem slík, og einnig í innkaupum undir viðmiðunarfjárhæðum og innkaupum sem eru undanskilin viðmiðunarfjárhæðum. Nýsköpunarmótið er hugsað til að styðja við alla innkaupaferla.

Í nýrri innkaupastefnu ríkisins er lögð áhersla á að innkaup séu hagkvæm, vistvæn og nýskapandi. Markmið laga um opinber innkaup er að tryggja jafnræði fyrirtækja, stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni og að efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opinbera á vörum, verkum og þjónustu.

Nýsköpunarmótið var haldið innan Nýsköpunarvikunnar 26. maí til 2. júní 2021.