Þekkingarsetur

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 19. janúar 2022 kl. 12:00 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. janúar 2022 kl. 12:00 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Stökkva á:flakk, leita

Suðurland

Þekkingarsetur Vestmannaeyja Starfsemi stofnanna og fyrirtækja innan Þekkingarseturs Vestmannaeyja er fjölþætt og kemur víða við sögu, t.a.m. í atvinnulífi, ferðamálum, menningarstarfsemi og menntun. Verkefni á vegum stofnanna eru ýmist verkefni sem eru unnin í breiðu samstarfi innan Þekkingarsetursins og/eða verkefni unnin í samstarfi við atvinnulífið í Vestmannaeyjum.

Nýheimar - Þekkingarsetur Hornafirði er samstarfshattur ólíkra stofnana sem starfa á sviði menntunar, menningar, nýsköpunar og rannsókna á Suðausturlandi. Aðilar að setrinu eru: Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Fræðsluskrifstofa Hornafjarðar, Háskólafélag Suðurlands, Matís, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Náttúrustofa Suðausturlands, Nýsköpunarmiðstöð, Ríki Vatnajökuls, Samband sunnlenskra sveitarfélaga, Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands, Vatnajökulsþjóðgarður og Vöruhúsið. Nýheimar þekkingarsetur sameinar þessar ólíku stofnanir undir einn hatt í þeim tilgangi að efla samvinnu og skapa öflugt þekkingarsamfélag á landsbyggðinni, stuðla að jákvæðri byggðaþróun á Suðausturlandi og bæta lífsgæði á svæðinu.


Suðurnes

Þekkingarsetur Suðurnesja Markmið Þekkingarseturs Suðurnesja snúa meðal annars að: rannsóknum og þróun, háskólanámi og samþættingu þekkingarstarfs og símenntun og samstarfi við aðrar menntastofnanir á Suðurnesjum.


Norðurland

Þekkingarnet Þingeyinga er símenntunar-, háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfar á grunni tveggja stofnana er sameinaðar voru árið 2006. Annars vegar er um að ræða símenntunarmiðstöðina Fræðslumiðstöð Þingeyinga og hins vegar háskólanáms- og rannsóknasetur sem starfaði undir nafni Þekkingarseturs Þingeyinga fram að sameiningunni. Símenntunarstarfsemin hófst árið 1999 um svipað leyti og aðrar símenntunarstöðvar á landinu hófu starfsemi. Háskólanáms- og rannsóknahlutinn fór hins vegar af stað árið 2003 samhliða Náttúrustofu Norðausturlands, sem starfar undir sama þaki og höfuðstöðvar Þekkingarnetsins á Húsavík.