Hugmyndaþorpið Norðurland
Hugmyndaþorpið Norðurland er hugmyndasamkeppni sem haldin var á vegum sveitarfélaganna SSNV og SSNA í tengslum við Nýsköpunarvikuna. Áhersla keppninnar að þessu sinni var fullvinnslu afurða í matvælaiðnaði en keppnin var rafræn og öllum opin.
Keppnin fór fram í gegnum samsköpunarvettvanginn Hugmyndaþorp en það er rafrænn vettvangur sem gerir notendum kleift að setja hugmyndir sínar fram á skipulegan hátt auk þess að vera í virku samtali við aðra þátttakendur með því að . Vettvangurinn er hannaður af Austan mána ehf.
Aðstandendur
Austan mána, SSNE, SSNV
Tímarammi
26.05 - 02.06 2021
Dómnefnd
Hildur Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Pure Natura, Jón Garðar Steingrímsson framkvæmdastjóri framleiðslu Genis og Sveinn Margeirsson sveitarstjóri Skútustaðahrepps og verkefnastjóri Nýsköpun í norðri.
Verðlaun
Hugmynd Dagnýjar Guðmundsdóttur var hlutskörpust en hún snýr að betri nýtingu á nautaskrokkum: „Nautshjörtu er mjög góður matur. Hef heyrt að nautalifur sé líka herramannsmatur. Gera vel útlítandi steikur, láta uppskriftir frá stjörnukokkum fylgja með. Selja tilbúna fulleldaða rétti“.
Aðrar viðurkenningar
- Vinsælustu hugmyndina átti Þórhallur Bjarnason um að gera Dýrafóður úr sorpi, en flestum þátttakendum líkaði við þá hugmynd.
- Virkasti þátttakandinn var Rögnvaldur Helgason en hann veitti flestar endurgjafir eða lagði orð í belg við hugmyndir annara.