Startup Orkídea
Startup Orkídea er hraðall ætlaður rótgrónum fyrirtækjum sem vinna að sjálfbærum lausnum á sviði hátæknimatvælaframleiðslu og líftækni. Hraðallinn hóf göngu sína árið 2020 og hann er samstarfsverkefni Orkídeu og Icelandic Startups. Orkídea byggir á samstarfi Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands og Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og snýr að uppbyggingu orkutengdra tækifæra framtíðarinnar á Suðurlandi s.s. sjálfbæra verðmætasköpun fyrir samfélagið og auka útflutning sem byggir á hugviti.
Hraðallinn nær yfir tveggja mánaða tímabil og er skipt upp í þrjár þriggja daga vinnusmiðjur sem lýkur með kynningum þátttakenda fyrir hóp fjárfesta. Um fimm teymi taka þátt í hraðlinum en sprotafyrirtækjum sem valin eru til þátttöku býðst 1 milljón kr. fjárstyrkur gegn valfrjálsum kauprétti Landsvirkjunar á 10% eignarhlut gegn 5 milljónum kr. hlutafé. Kauprétturinn fellur niður sex mánuðum eftir fjárfestadag verkefnisins en þátttakendur geta valið að þiggja ekki styrkinn og fellur þá kauprétturinn niður.