Vesturland

Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 19. janúar 2022 kl. 11:04 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. janúar 2022 kl. 11:04 eftir ArnhildurLily (spjall | framlög)
Stökkva á:flakk, leita
Landshluti
thumb
Íbúafjöldi17000
Flatarmál9554 km²


Í Sóknaráætlun Vesturlands 2020-2024 er tiltekið að markmið landshlutans sé að „stuðla að vexti atvinnulífs, auka nýsköpun, hækka menntunarstig og fjölga störfum án staðsetningar“.

Lausnamót

Hraðlar

Samvinnu- og/eða nýsköpunarrými

Breið þróunarfélag er samvinnu- og nýsköpunarrými á Akranesi staðsett í fyrrum húsnæði útgerðarfyrirtækisins Brim á iðnaðarsvæði Akranessbæjar svokallaðri Breið. Breið þróunarfélag hóf starfsemi sína 2020 en að því standa Akranesbær og útgerðarfyrirtækið Brim.

Röst á Hellissandi er nýlega stofnað samvinnurými staðsett í félagsheimili bæjarinns.

Hugheimar í Borgarnesi hóf starfsemi árið 2014 og hefur býður vinnuaðstöðu fyrir frumkvöðla, listafólk og störf án staðsetningar. staðið fyrir ýmsum viðburðum og námskeiðum sem og boðið vinnuaðstöðu fyrir frumkvöðla, listafólk og störf án staðsetningar.

Árnasetur í Stykkishólmi Skrifstofu- og frumkvöðlasetur sem býður fyrirtækjum og einstaklingum vinnuaðstöðu.

Nýsköpunar- og frumkvöðlasetu í Dalabyggð Fyrir liggur að setja upp nýsköpunar- og frumkvöðlasetur, en Dalabyggð hefur hlotið til þess styrk úr Uppbyggingarsjóði 2020.

Þróunarfélagið Grundartanga vinnur að þróun og uppbyggingu atvinnusvæðisins á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit.

Nýsköpunar- og þróunarsetur háskólans á Bifröst og Landbúnaðarháskóla Íslands er samstarfverkefni ætlað að styðja við og efla nýsköpun í landshlutanum.

Annað stuðningsumhverfi

Uppbyggingarsjóður Vesturlands veitir styrki til landshlutans en Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hafa umsjón með sjóðnum. Á vefsíðu samtakanna má sjá úthlutanir sjóðsins frá árinu 2015. Sjóðurinn, sem er samkeppnissjóður, veitir árlega fjölmörgum verkefni styrk til að ýta úr vör hugmynd. Meðal hugmynda sem hafa blómgast má nefna Frystiklefanná Rifi, Landnámssetrið í Borgarnesi og Kaju Organic á Akranesi.

NýVest - Nýsköpunarnet Vesturlands er verkefni sem sett var á laggirnar árið 2021 og er ætlað að vera stuðnings- og þekkingarnet landshlutans í málum nýsköpunnar ásamt því að tengja saman frumkvöðla og hagaðila. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi SSV hafa umsjón með verkefninu.

Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi Rannsóknarsetur staðsett í Stykkishólmi. Viðfangsefni setursins er starfssvæði Snæfellsnes og Breiðafjarðar. Áhersla er lögð á rannsóknir á sérstæðri og alþjóðlega mikilvægri náttúru Breiðafjarðar, Snæfellsness og norðanverðs Faxaflóa.

Nýsköpunarverkefni á Vesturlandi

Nafn Staðsetning Lýsing
Sedna Biopack Akranes Þróun á matvælapakkningum úr filmum unnum úr nokkrum tegundum brúnþörunga.
IceWind Akranes Þróun og smíði lóðréttra vindtúrbína fyrir fjarskipta og neyðarkerfi á norðlægum slóðum.
Norður og Lokinhamrar Akranes Vinna bragðefni úr grjótkröbbum og þróa vinnslu á próteinum úr sjávarfangi.
Grammatek Akranes Sérhæfir sig í rannsóknum og þróun á sviði máltækni fyrir íslensku.
ALGÓ Akranes Vinnur að þróun lífrænna ræktaðra matvæla úr sjávarþörungum.
IceSilk Grundarfjörður Fyrirtækið sér um ræktun á silkiormum og vinnslu á afurðum silkiormsins.
Háafell-Geitfjársetur Reykholt Fullvinnsla á afurðum úr geitamjólk, fitu og kjöti.
Svæðisgarðurinn Snæfellsnes Snæfellsnes Samstarf sveitarfélaga og fyrirtækja á Snæfellsnesi um markaðssetningu ábyrgra matvæla frá Snæfellsnesi.