Eimur
Úr Vistkerfi nýsköpunar
Útgáfa frá 17. janúar 2022 kl. 13:48 eftir 213.181.119.168 (spjall)
Útgáfa frá 17. janúar 2022 kl. 13:48 eftir 213.181.119.168 (spjall)
Vefsíða | |
---|---|
Netfang | sesselja@eimur.is |
Eimur er staðsett á Norðurlandi eystra. Eimur er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Norðurorku, Orkuveitu Húsavíkur og Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Markmið verkefnisins er að bæta nýtingu orkuauðlinda og auka nýsköpun í orkumálum á Norðausturlandi. Ætlunin með samstarfinu er meðal annars að byggja upp atvinnulíf og auka verðmætasköpun á svæðinu, með sérstakri áherslu á sjálfbærni, grænar lausnir, nýsköpun og hátækni.
Sumarið 2020 var ákveðið að endurfjármagna verkefnið til annarra þriggja ára, og mun það því starfa hið minnsta fram til ársins 2023.
Hjá Eimi starfa í byrjun árs 2022:
- Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir framkvæmdastjóri
- Ottó Elíasson Rannsókna- og þróunarstjóri
- Gunnar Orri Ólafsson Jensen Verkefnastjóri